Já, við skötuhjúin skelltum okkur á djammið í gær og stóðum
okkur alveg rosalega vel. Það var ekki skriðið heim fyrr en um hálf
6, og geri aðrir betur. Við komum okkur sjálfum á óvart.
Það var hins vegar hálf undarlegt að vakna í morgun og enginn
Sölvi í rúminu sínu
Hann var hjá Brynju í nótt og skemmti sér alveg konunglega.
En svo við vindum okkur aftur að djamminu þá var alveg svaka
stuð á okkur stöllum enda ekki við öðru að búast. Við
kennarastöllur fórum, ástamt Guddu systir á Players og dönsuðum þar
við Papana. Það er hins vegar gaman að segja frá því að fyrsti
maður sem ég sé þegar ég geng inn á players er að sjálfsögðu Illi
töfra!! Hvað er þetta með manninn stelpur!!!! Hann er alls
staðar þegar við förum á djammið og það er nú ekki oft. Þetta er
alveg ótrúlegt.
Ég frétti svo seinna um kvöldið að tveir snillingar hefðu gengið
mér úr greipum en þeir Ralli og Þrölli voru víst að lyfta sér upp
líka í rigningunni!!!! Hver vill ekki hitta þá og rifja upp gamla
tíma s.s. erobiksport og óteljandi sms skilaboð!!!!!!!!!!
Að lokum ætla ég að koma á framfæri óánægju minni með Papana sem
KUNNA EKKI EYJALÖG!!!!
Þetta gengur ekki. Við Björg Ósk reyndum meira að segja að múta
Matta söngfugli með því að lofa að greiða honum atkvæði okkar í
kvöld í söngvakeppni sjónvarpsins. Hann treysti sér samt ekki í að
spila neitt eyjalag.
Ég held að ég muni aldrei aftur fara
á Papa ball en Björg mín . . . . . . þú ert æði og takk kærlega
fyrir kvöldið stelpur og strákar.
Ég skemmti mér alveg geggjað vel.
En nóg komið í bili. Best að vinda sér í lagagetraunina sem ég
hef legið lengi yfir í þetta skiptið.
Áfram, nú við æðum af stað
Góða nótt
Lína